Þetta holla og safaríka brauð er afar einfalt að baka enda er það gerlaust. Það er ákaflega gómsætt á meðan það er enn dálítið heitt, smurt með alvöru smjöri! En það helst safaríkt lengi og það er …
Þriðja uppskriftin af brauðbollum á stuttum tíma og það er ástæða fyrir því – við bökum gjarnan brauðbollur og höfum á árdegisverðarborðinu um helgar. Það eru okkar gæðastundir, þegar við köl…
Dúnmjúkir snúðar með góðu bananabragði, súkkulaði & kanilfyllingu hjúpaðir ómótstæðilegu súkkulaði & hnetusmjörskremi.
Það kannast flestir við þetta brauð en það kallast pottabrauð og er án efa einfaldasta brauð í heimi. Í gærkvöldi …
Þessar saltkringlur slógu algörlega í gegn hér á heimilinu, en þær kláruðust upp á einu augnabliki. Enda ekki skrítið því þær eru…
-Samstarf- Þeir sem þekkja Brauð & Co kanilsnúðana vita hversu bilað góðir þeir eru. Ég að minnsta kosti er alveg húkkt á…
Já, kallið mig bara ömmu núna! Hér er nostalgían í öllu sínu veldi enda er líka Covid, það eru að koma jól og það er allt leyfilegt í eldhúsinu! Ekki skemmir síðan fyrir hvað það er ofureinfalt að útbúa þessa tertu! Það virðast allir elska brauðtertur, en allt of
Stútfull af ofnbökuðu grænmeti og ricotta- og fetaosti. Þessi baka er ómótstæðileg og gjarnan á borðum hjá Vatnholtsgenginu þegar húsmóðirin er í stuði og útbýr ferskan ricotta skv. þessari uppskri…
Þessi uppskrift dugar fyrir fjóra og er fullkomin fyrir helgar brunchinn. Hér er svo um að gera að prófa sig áfram. Til dæmis er gott að bæta við nokkrum smjörsteiktum sveppum í sneiðum, aspas eða öðru grænmeti.
Ég fékk uppskrift að dásamlega góðu hrökkkexi frá vinkonu minni sem er heimilisfræðikennari og snillingur í eldhúsinu. Mér finnst ofsalega gott að grípa í hrökkkex með góðum ostum eða öðru áleggi o…
Í síðustu færslu fór ég yfir það helsta sem var í bígerð í eldhúsinu mínu fyrir jólaveisluna. Þetta hafa verið erfiðir dagar ... það er næstum því þannig að maður stendur á blístri í rúmar sjötíu klukkustundir. Aðfangadagur var góður, byrjaði varlega með fremur léttum degi í vinnunni og svo undirbúningi fram eftir degi. Og svo eins og hjá öllum - var veisla um kvöldið. Jóladagur var öllu erfiðari. Maður vaknaði eiginlega saddur og fór beint í veislu í hádeginu og svo aftur um kvöldið. Svo var aftur veisla í gærkvöldi - annan í jólum. Þetta virkar hálf pervertískt - eitthvað rómverskt - þrír dagar af algerri neysluveislu. Maður lá afvelta í allan þennan tíma. Eiginlega saddur bara við það eitt að klæða sig upp í jóladressið - bara væntingarnar einar saman dugðu til þess að maður varð hálfmóður og dasaður - meira að segja áður en maður var búinn að innbyrða kræsingarnar. Ég var á vakt í gærkvöldi. Sem betur fer var værð yfir öllu í nótt - nær ekkert um bráðaveikindi - sem betur fer ekkert alvarlegt á ferðinni yfir blánóttina. Dagurinn eftir annan í jólum er hins vegar almennt talinn vera erfiðasti dagur ársins. Starfsmenn þreyttir eftir ofátið og sjúklingarnir sömuleiðis. Aðfangadagsveislan - þvílíkt og annað eins. Í forrétt var graflax. Tvær tegundir eins og kom fram í fyrri færslu. Borið fram með ristuðu brauði og graflaxsósu eins og lög gera ráð fyrir. Eddi, tengdafaðir minn, gerði þessa ljúffengu og þykku graflaxsósu sem við gæddum okkur á. Ég verð að biðja hann um uppskriftina. Einnig var ég með reyktan lax sem Eddi hafði veitt í sumar og sett í reyk hjá góðu fyrirtæki á Laugarvatni - þvílíkt sælgæti. Á seinni árum hefur mér alltaf þótt reykti laxinn vera betri. Ég bar hann fram með blini, rauðlauk, og sýrðrjómasósu með piparrót og sírópi. Blini er flott orð yfir rússneskar lummur. Hefðbundið eru þær bornar fram með góðum kavíar en það má auðvitað nota þær í hvað sem er. 150-200 gr af bókmjölshveiti er blandað saman við 200 gr af venjulegu hveiti. 20 gr af geri eru vakin í 150 ml af ylvolgri mjólk með 2 tsk af sykri. Gerið kemur til með að freyða vel og þá sést að það er tilbúið. Tveimur eggjarauðum er blandað saman við hveitið ásamt rúmlega 2 dl af matreiðslurjóma. Þessu er hrært vel saman við germjólkurblönduna þannig að þetta verði að vöffludeigi. Látið standa í 2 klukkustundir og hefast. Þá eru eggjahvíturnar nærri stífþeyttar og blandað saman við deigið - varlega svo að loftið leki ekki út því. Lummurnar eru steiktar á pönnu - matskeið í senn - hver lumma á víst að vera svona eins og tveir munnbitar. Með reykta laxinum og lummunum bar ég fram afar einfalda sósu. 1 dós af 10% sýrðum rjóma var blandað saman við 1 tsk af piparrótarmauki, salti, pipar, smá sírópi og 1/3 búnti af steinselju. Einnig var ég með smátt skorinn rauðlauk með. Engan kavíar þó. Innbakað hreindýrainnralæri Í aðalrétt var ég með innbakað hreindýra innralæri - svona roastbeef stykki. Það var tekið úr frystinum helgina fyrir jól og fékk að þiðna í ísskápnum hægt og rólega. Það var svo penslað með olíu og piprað vel og rækilega með piparkornablöndu. Það var svo steikt á funheitri pönnu - í nokkrar sekúndur á hverri hlið rétt til að loka því. Það var svo sett í portobellosveppa og parmaskinkuhjúp. 500 gr af portobellosveppum voru hakkaðir í matvinnsluvél og svo færðir yfir á pönnu og hitaðir þannig að vatnið gufaði upp af þeim. Svo saltaðir og pipraðir og í lokin bragðbættir með smávegis fersku timian og steinselju. Þessu var svo lokað í smjördeigshjúp eins og myndirnar gefa til kynna og bakað þar til kjarnhiti var um 60-63 gráður. Bleikt og fallegt að innan. bakað þar til kjarnhiti var um 60-63 gráður. Bleikt og fallegt að innan. Borið fram með dýrindissósu sem var gerð úr kjötsoðinu sem ég hef verið að búa til síðustu daga. Soðið var fyrst um 3 l eftir að það hafði verið síað. Það var svo soðið niður í rúmlega lítra. Smjörbolla var gerð á hefðbundinn hátt til að þykkja sósuna. Hún var svo bragðbætt með um 200 ml af rjóma, 2-3 kúfuðum teskeiðum af heimagerðri sultu, smá skvetta af sherríi, söltuð og pipruð þar til hún varð ljúffeng. Með matnum var einnig ofnbakaðar kartöflur. 2 kg af kartöflum voru flysjaðar og lagðar í eldfast mót. 30 gr af fitu sem flaut upp við sósugerðina síðustu daga og hafði verið tekið frá, var hitað í potti og síað. Þessari hreinu fitu var svo hellt yfir kartöflurnar og þær hjúpaðar. Svo var berki af 1 sítrónu og tveimur klementínum raspað yfir og svo saltað og piprað í lokin. Bakað í ofni við 170 gráðu hita í rúmlega klukkustund (ég var með þetta í gamaldagsofni - ekki blástursofni þannig að eldunartími var lengri en hefði verið í blástursofninum). Einnig var ég með Waldorfsalat sem var gert eftir hefðbundinni uppskrift. Með matnum var svo drukkið dýrindis rauðvín. Le Tourelle de Loungeville - franskt og ljúffengt. Einnig drukkum við Anakena Cabernet Sauvignion. Í desert var svo bláberjakampavínszabaglione - ég hef áður bloggað um slíkt og geri kannski aðra færslu tileinkaða þeim rétt. Alveg ljúffengur á svona decadent hátt.
Það elska allir sem ég þekki heita brauðrétti! Ég hef útbúið þá nokkra í gegnum tíðina og einhvern veginn gerir maður alltaf sömu réttina. Nú ætla ég hins vegar í átak að prófa nýja brauðrétti og þessi hér er algjört dúndur! Fyrir sósuna sem hellt er yfir réttinn notaði
innkaupalisti fyrir 4 undir 2000 kr. 500 g hveiti 400 g rúgsigtimjöl(sigtimjöl) 20 g salt 30 g þurrger (2
Þegar kemur að jólamat finnst mörgum gaman að halda í hefðir. Til dæmis útbúa klassískan gamaldags vanilluís, rækjukokteil eins og amma bjó til nú eða tartalettur að hætti mömmu. Sumum finnst tartalettur einmitt alveg ómissandi um jólin og hér er því uppskrift sem er bæði einföld og góð. TARTALETTUR MEÐ ASPAS OG SVEPPUM 8-10 stk. […]
Einn þeirra rétta sem eiginmaðurinn hefur masterað snilldarlega eru bökur í ýmsum útgáfum. Sannarlega ekki eini rétturinn svo því sé til haga haldið, hann eins og aðrir í fjölskyldunni eru vel liðt…
Annar sunnudagur í aðventu … tíminn þýtur svo sannarlega áfram. Í dag fórum við í árlegt aðventukaffi til Ingu frænku í tilefni afmælis hennar. Að vanda bauð hún upp á gómsætar veitingar, upp…
Gleðilegan þjóðhátíðardag! Það eru eflaust fáir sem sitja við tölvuna í dag en þó eru alltaf einhverjir sem velja að nýta frídaginn í afslöppun heima við. Sjálf hefði ég ekkert á móti því. &…
Skinku og hangikjötsbrauðterta Hún er lostæti, það er samsetningin á henni sem er hreint út sagt mögnuð og ferskjurnar maður, þær gera hana extra ferska líka og ég get sagt ykkur að hún klárast alltaf alveg upp til agna, vá hvað mig langar í eina sneið núna!1.stk brauðtertubrauð, langskorið eða kringlóttSkinkusalat:1.p
Já, kallið mig bara ömmu núna! Hér er nostalgían í öllu sínu veldi enda er líka Covid, það eru að koma jól og það er allt leyfilegt í eldhúsinu! Ekki skemmir síðan fyrir hvað það er ofureinfalt að útbúa þessa tertu! Það virðast allir elska brauðtertur, en allt of
Að skreyta brauðtertu er mikil kúnst og hér er ein sérdeilis lekker sem kemur úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is.
Visit the post for more.
Ég átti afmæli núna á sunnudaginn. Ég elska að eiga afmæli og eitt af því sem mér finnst skemmtilegast er að halda afmælisveislu með fullt af veitingum. Ég er ekki að grínast mér finnst það æðisleg…
Fylltar tartalettur henta vel á veisluborðið og í raun er hægt að setja hvaða brauðréttafyllingu sem er í þær. Þessi fylling með rækjum og gríski jógúrt er sérstaklega bragðgóð og því óhætt að mæla með.
Það er aldrei of mikið framboð af góðum uppskriftum að heitum brauðréttum. Mér finnst allavega gulls ígildi að eiga margar slíkar uppskriftir í handraðanum enda er ekki hægt að halda kökuboð án slí…
Ég elska brauðrétti. Gæti sleppt öllum kökum og borðað bara brauðrétti í veislum. Ef ég á að mæta með einhvað í kökuboð, mæti ég lang oftast með brauðrétt. Ég hennti í þennann brauðrétt fyrir vinnu…
Súrdeigsbakstur er ævaforn matreiðsluaðferð og mætti flokkast undir „slow food“. Við fyrstu sýn virðist þetta allflókið, en ef farið er eftir leiðbeiningunum lið fyrir lið, ætti það að reynast léttur leikur. Og umfram allt skemmtilegur! Til að byrja með þarf að útbúa grunnsúr. Það er tiltölulega auðvelt og gaman, en tekur u.þ.b. 5-7 daga. Ef maður getur ekki beðið, er hægt að kaupa grunnsúr t.d. í Grímsbæ.
Ostapönnukökur með reyktum laxi og límónukremi
Stundum rekumst við á uppskriftir sem eru þess eðlis að þær verður að prófa. Þessi brauðréttur er í þessum flokki en höfundur uppskriftarinnar segir að það sé ekki nokkur leið að sannfæra fólk um ágæti þessa réttar - það verði hreinlega að smakka hann.
Brauðbakstur er heillandi og skemmtileg iðja, gróf, fín, með geri eða gerlaus, súrdeigs, lítil, stór, löng, stutt, bökuð í potti, í formi, á plötu eða steini – jafnvel grilluð- möguleikarnir …
Á haustin þykir mér fátt betra en að elda úr íslensku ný uppteknu grænmeti. Verslanir eru nú fullar af þessu góðgæti og það ætti enginn að láta fram hjá sér fara að njóta þess að útbúa hollan og gó…
Beyglur með rjómaosti er bara eitthvað sem ég elska. Hvað þá heimabakaðar beyglur sem eru bara bestar. Trúið mér þær er ekki…
Í dag ætla ég að gefa ykkur uppskrift (ef uppskrift skyldi kalla) að afskaplega einfaldri útgáfu af gómsætri pizzu sem ekkert þarf að hafa fyrir. Þetta byrjaði á því að ég sá mynd á Pinterest fyrir…
Þennan rétt má útbúa með fyrirvara og geyma í ísskáp og jafnvel frysta. 1 rúllutertubrauð 1 laukur, smátt saxaður 300 g brokkólí, smátt saxað olía til steikingar 1 lítil dós grænn aspars, látið vök…