This Pin was discovered by Traci Ninde-Mercado. Discover (and save!) your own Pins on Pinterest.
If you have a knitter on your list and don't know what to get them, well let me steer you in the right direction! When you know someone does a craft, sometimes it's easy to get overwhelmed by the options of things that you don't know what to do with. Well, I am here to
Hello and welcome to my jewellery and goldsmithing blog. Let me share with you how I make and remodel jewellery via a collection of photographs of works in progress and of finished pieces. All pieces are handmade in my Dublin studio using traditional hand skills so if you'd like an insight into the day of a goldsmith this is the blog for you.
Running Shoe Charm, Custom Hand Stamped Metal "Runner" Inspirational Shoe Quotes, The perfect gift for any runner!
EVE silver ring by missyindustry on Etsy
Fridag med hjemmekontor på torpet, vinterferie og sol - det gode liv nytes!!! Deilig fridagsantrekk fra Line of Oslo Bukse 1200,- V...
Kvenhúfa. Efni svart flujel. Öll baldýruð með gullvír og silfurvír, lögð silfurfljettum og silfursnúrum. Kollurinn er kringlóttur, 15,5 - 16 cm. að þverm., með 12 blöðum á stilkum út frá silfur-stjörnu. Fyrir neðan er sem kappi, allur baldýraður, með svartri blúndu neðst og 2 böndum. Varla eldri en frá miðri 19. öldinni. Baldýringin er ágætlega gerð.
Skautbúningur Bjargar Sigríðar Önnu Eiríksdóttur. Björg Sigríður Anna Eiríksdóttir (f. 30. júní 1865, d. á Sauðárkróki 31. júlí 1928) frá Skógargerði í Suðurþingi, sem átti búninginn, var húsfreyja á Sauðárkróki frá 1891-1928 (á Sauðárkróki bjó hún m.a. í húsi því sem nú er kallað Gilsstofa og er eitt varðveittra safnhúsa í Skagafirði). Mikill kvenskörungur og framakona m.a. í Sambandi Skagfirskra kvenna. Maður hennar var Kristján Gíslason kaupmaður á Sauðárkróki (15. júní 1863 - 3. apríl 1954). Gefandi búningsins og alls sem honum fylgir er Björg Kofoed Hansen, barnabarn hennar. a) Treyjan er úr svörtu klæði, lengd 39 cm, brjóstmál 89 cm, ermalengd 56 cm. Boðungar og líningar úr svörtu flaueli, útsaumaðir með gulu og gylltu eikarlaufsmynstri að fyrirmynd Sigurðar Guðmundssonar málara frá Hellulandi. Saumaður með balderíngu og aftursting og eru litlar pallíettur notaðar með til skrauts. Listilega vel gert. Á ermum og í hálsmáli eru hvítar ,,plíseraðar" líningar að því er virðist úr næloni og sennilega nýlega settar á. b) Samfellan er úr svörtu klæði. Sídd 113 cm. Mittismál um 80 cm. Neðst er svört flauelsbrydding og ofan við 24 cm útsaumaður mynsturbekkur með gulu eikarblaðsmynstri saumað með mislöngu spori af mikilli kunnáttu. Bæði treyja og samfella eru glæsilegar flíkur, sem Steinunn Thorsteinsson (merkt STh) saumaði á árunum 1907 - 1909 fyrir Björgu. Samfellan er fóðruð með svörtu silkifóðri en treyjan með ljósrauðum líndúk - léreft. c) Spöngin er gyllt úr silfri, merkt B.E og stimplað með tveimur stimplum þeim sömu EM, sem var Erlendur Magnússon (1848-1909) gullsmiður frá Bollastöðum í Hraungerðishreppi, en hann smíðaði og steypti mikið af nælum og beltisstokkum eftir mótum af gripum á þjóðminjasafninu. Þvermál er 16 cm, mest hæð 4,1 cm. Munstur er á allri neðri brún spangarinnar og lykkja á sitt hvorum enda til að binda á bönd. d) Stokkabelti, steyptir 18 stokkar eru í beltinu og einn fylgir aukalega. Hver stokkur er 6,6 x 3,3 cm nema endastokkurinn á sprota og skildi 140 cm. Skjöldurinn er kringlóttur, 5,7 cm í þvermál með krók að aftan. Mynstrið er vængjaður maður með kórónu og laufskrauti í kring og sníðilegar brúnir. Á stokknum eru sitjandi mannverur, karlar, og sitt til hvorrar handar tvær meyjar og laufskraut. Sex grænir og tveir hálfir grænir hringar eru á samskeytum beltis og sprota. Allt er beltið hið glæsilegasta. Á skildinum er stimpill með: ERLENDUR og sami stimpill og er á endastokk sprotans. Erlendur þessi er hinn sami og smíðaði spöngina og er mynstrið vafalaust eftirgerð minja sem þjóðminjasafn Íslands varðveitir. e) Faldur - krókurinn er fóðraður með hvítu lérefti mesta lengd um 28 cm. Utan um hann er saumuð silki ,,húfa" sem fellur alveg að honum og á hana er blæjan fest og slaufa úr silki, en einnig fylgir aukaslaufa úr hvítu silki. Áfast faldi er hárkambur úr brúnu plasti til að festa faldinn á hárið. Höfuðbúnaðurinn er saumaður í Reykjavík 1944. f) Blæjan (slörið) úr hvítu fíngerðu efni með rósamynstri.,136 cm að lengd og er hún saumuð á faldinn, hún er keypt á Spáni fyrir 1950. g) Næla úr silfri, gyllt plata 5,9 cm í þvermál með víravirkisskrauti. Alltaf notuð við búninginn. Gefandi segir næluna sennilega smíðaða af Höskuldi Árnasyni gullsmiði í Skagafirði. Á nælunni eru tveir stimplar: H.A. og 830 sem þýðir 830 silfur. Hólmfríður Jónsdóttir tengdadóttir Bjargar Eiríksdóttur og móðir gefanda átti næluna. Sennilega frá því eftir 1920. h) Brjóstið er hvítt stífað efni með hvítum blúndurenningi, ekki upprunalegt. Björg Kofoed Hansen notaði búninginn oft í veislum og við móttöku erlendra þjóðhöfðingja, en maður hennar Agnar Kofoed Hansen var lögreglustjóri og flugmálastjóri í Reykjavík. Búningurinn hefur farið víða og margar merkar konur klæðst honum, nokkrar fjallkonur í Reykjavík hafa skartað þessum búningi t.d. leikkonurnar Bryndís Pétursdóttir (1928-2020) og Guðrún Ásmundsdóttir (1938- ). Guðrún Guðmundsdóttir fegurðardrottning fékk hann lánaðan til Long Beach í Kalíforníu á alheimsfegurðarsamkeppi. Halldóra Eldjárn (1923-2008) skartaði einnig þessum búningi þegar maður hennar, Kristján Eldjárn (1916-1982), var settur í embætti forseta Íslands árið 1968.