Grískur kjúklingur. Alltaf er nú skemmtilegt að prófa rétti frá öðrum löndum. Eins og sjá má í uppskriftinni eiga að vera kjúklingabaunir en því miður gleymdi ég að kaupa þær, þess vegna sjást engar baunir á myndunum. Fetaostinn fékk ég í Tyrkneskum basar í Síðumúlanum. Og í upphaflegur uppskriftinni er tekið fram að í þennan rétt eigi að nota 12 ólífur....
Hér er allt það sem hægt er að óska sér: kjúklingur, karrí og ruglgott salat sem setur punktinn yfir i-ið á fullkominni máltíð.
„Ég held að okkar helstu næringarmistök síðustu áratugi hafi verið að „banna“ allt sem heitir fita í mataræði okkar Íslendinga. Sem betur fer erum við flest farin að borða rauðuna aftur í eggjunum okkar og smjörið er í stórsókn frá 2012 og fitan ekki lengur eitthvað sem við erum að forðast. Nú tel ég að við þurfum að taka næsta skref og fara að taka hina frábæru ólífuolíu mjög sterkt inn í daglega fituneyslu okkar og fara að nota hana svona eins og „nýja“ lýsið okkar Íslendinga.“
Ef það er eitthvað sem gerir góðan dag enn betri er það tilhugsunin um að gæða sér á dásemdar kjúklingi með þessu líka svaðalega meðlæti.
Eyþór Rúnarsson býr til dásamlega góðan kjúkling með bragðgóðu hrásalati, frábær sumarréttur.
Haldið ykkur fast því hér kemur uppskrift sem er ekki bara líkleg til vinsælda heldur er nánast gefið að hún muni rústa kvöldverðarkeppninni. Hér erum við að tala um löðrandi ost, stökka skorpu og gómsætan kjúkling.
Mangokylling i grøn karry og kokossauce er en rigtig herlig hverdagsret, der har lidt af det hele - her er mange smagsnuancer i spil, og den er klar på små
Mér finnst indverskur matur afskaplega góður en ég er frekar ódugleg við að búa til slíka rétti frá grunni. Það er aðallega langur hráefnislisti sem fælir mig frá og þá oft að í uppskriftunum eru h…
Það er alltaf gaman og reyndar bráðnauðsynlegt að prófa eitthvað nýtt. Þessi réttur fellur í þann flokk og ætti sannarlega að prófa. Svo má útfæra að eigin höfði en við fullyrðum að bökur eru matur sem við ættum að borða mun oftar.
Því ber að halda til haga að þessi uppskrift hentar jafn vel fyrir börn og fullorðna þó að foreldrar séu einstaklega hrifnir af henni þar sem hún er í uppáhaldi hjá mörgum börnum.
Ég elska rétti sem eru afar einfaldir en smakkast eins og mikið hafi verið fyrir þeim haft. Þessi kjúklingur er svo sannarlega…
Ég skilaði síðasta verkefni BA námsins á mánudaginn og er búin að vera heima að eiga mér líf með dóttur minni síðan. Þvílíkur léttir! ...
Hvern þyrstir ekki í ómótstæðilegan ketó kjúkling á degi sem þessum? Ekki síst þegar hann er svo auðveldur að átta ára barn gæti auðveldlega búið hann til án þess að blikna.
Sumar uppskriftir eru svo heillandi að það er ekki annað hægt en að ýta öllu skipulagi til hliðar og heimta að fá svona gúmmelaði í matinn (nú eða elda það sjálf/ur).
Þetta mikla gúmmelaði þykir mér alveg kjörinn föstudags- eða helgarmatur. Ég eldaði réttinn á dögunum og stóð sennilega ekki lengur en 15 mínútur við eldavélina og lét ofninn sjá um restina. Svolei…
Þessi uppskrift er ótrúlega einföld og niðurstaðan sérlega ljúffeng. Hugmyndin er úr ýmsum áttum. Fyrirmyndin er frönsk - pommes boulangère - sem eru þunnt skornar kartöflur raðað saman með þunnum sneiðum af þunnt sneiddum lauk bragðbætt með timian og penslað með smjöri. Og auðvitað nóg af salti og pipar. Mín uppskrift var ekkert svo frábrugðin nema að ég notaði fjölbreytt úrval af rótargrænmeti sem ég átti inní ísskáp; maírófu, hnúðkál, sætakartöflu, nípu, seljurót, lauk og auðvitað venjulegar kartöflur. Og svo kjúklingurinn. Ég er eiginlega með smjörpenslaðan kjúkling á heilanum. Þegar ég var að skrifa bókina mína - Veislan endalausa - datt ég niður á þessa fáranlegu einföldu en algerlega dásamlegu leið til að elda kjúkling. Pensla kjúklingabita með góðu smjöri - endurtaka það nokkrum sinnum á meðan kjúklingurinn bakast í heitum ofninum - með nóg af smjöri. Niðurstaðan er að kjúklingurinn poppast, kjötið verður lungamjúkt og húðin eins og kex. Mig langar hreinlega að endurtaka þessa uppskrift í þessum töluðum orðum. Smjör getur gert kraftaverk! Það er gaman þegar einfaldar hugmyndir heppnast vel. Fátt er meira verðlaunandi en að taka fáein hráefni, raða þeim saman og úr verður veisla! Ofngrillaðir kjúklingabitar með rótargrænmeti bakarans, rjómalagaðri sósu og einföldu salati Hráefnalisti Fyrir fjóra til sex 12 kjúklingabitar 75 g smjör salt og pipar sítrónutimian 3 kartöflur 1 majrófa 1 hnúðkál 1 sætkartafla 1 gulur laukur 1 nípa 3 msk hvítlauksolía 3 msk ferskt sítrónutimian 300 ml kjúklingasoð Flysjið allt grænmetið og takið ykkur síðan góðan hníf í hönd og skerið í þunnar sneiðar. Penslið ofnskúffu með hvítlauksolíu, setjið salt og pipar í botninn og raðið svo grænmetinu upp í lögum. Setjið meira af hvítlauksolíu, salt og pipar. Setjið karföflurnar síðast, þær njóta þess best að brúnast í ofninum. Og ekki gleyma að raða fersku tímiani á milli laganna. Hellið 300 ml af kjúklingasoði í ofnskúffuna. Saltið og piprið efsta lagið og dreifið smáræði af timiani yfir. Setjið inn í 180 gráðu heitan forhitaðan ofn og bakið í 30 mínútur áður en að kjúklingum er raðað ofan á. Ég keypti kjúklingalæri sem ég hlutaði í tvennt. Ég kaupi oftast kjúkling frá Bjäre sem er framleiddur á norðvestanverðum Skáni. Þar eru mannúðlegri aðferðir hafðar í hávegum við kjúklingaeldið. Kjúklingurinn er fóðraður með korni sem gerir það að verkum að kjötið er aðeins dekkra á litinn og hefur meira bragð. Svona eins og kjúklingur á að bragðast! Ég skar líka aðeins neðan af leggjunum þannig að húðin á leggnum eigi meiri sjéns að dragast saman. Þá verður leggurinn ber - lítur smart út! Ofnskúffan er sótt úr ofninum. Gætið þess að brenna ykkur ekki. Leggið kjúklinginn ofan á og penslið með bráðnu smjöri. Saltið og piprið og raðað nokkrum greinum af timian með. Setjið aftur inn í heitan ofninn og bakið í 45-55 mínútur þangað til að kjúklingurinn er fallega gullinn. Penslið hann með smjöri á 10 mínútna fresti. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum, útbúið þið sósuna. Hún var að þessu sinni ofureinföld. Átti ljúffengt heimagert kjúklingasoð inn í frysti sem ég afþýddi - 500 ml, sauð upp með 150 ml af rjóma. Saltaði og pipraði og þykkti með maisenamjöli. Smakkað til með smá soyasósu. Við drukkum þennan klassíker með matnum. Montes Alpha Cabernet Sauvignion frá því 2011. Þetta er vín frá Chile sem hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér og ég hef greint frá margoft hér á blogginu mínu. Svona er það stundum - það er alltaf gott að rifja upp gamla klassíkera - sér í lagi með svona veislumáltíð eins og þessari. Og þetta er kröftugt vín, þétt, bragðmikið með miklum ávexti og ljúfu eftirbragði. Þeir sem hafa ekki smakkað þetta vín ættu að sjálfsögðu að prófa! Og svo er ekkert annað að gera en að setjast að borðum, raða matnum á disk - skála svo við fjölskylduna og njóta. Læt fljóta með mynd af bókinni minni sem er á leiðinni til landsins og verður fáanleg í öllum betri bókabúðum nú fyrir jólin. Við munum efna til útgáfuveislu þann 31. október næstkomandi. Ykkur er öllum að sjálfsögðu boðið. Veislan endalausa!
Take your tastebuds on a trip to France with this delicious and easy French-style creamy chicken and potato bake. INGREDIENTS ...
Þessi kjúklingaréttur bjargaði svo sannarlega geðheilsunni hér á þessu heimili í gær! Það er svo gaman þegar tilraunastarfsemi heppnast vel og almáttugur hvað þessi réttur er góður! Ég setti hluta af honum í sér form fyrir litluna mína þar sem hún elskar ekki stóra bita af grænmeti í svona
Pabbi rétti mér þessa uppskrift um daginn, við prófuðum hana og höfum síðan eldað þennan rétt nánast vikulega.. Þessi uppskrift er auðveld, sjúklega góð og ég mæli hiklaust með að allir prófi þetta…
Indverskur kjúklingaborgari Uppskrift: Marta Rún Ársælsdóttir Fyrir 2 2 kjúklingabringur 1 egg hveiti rasp 1 tsk chillikrydd salt & pipar 1 tsk Þurrkuð steinselja 1/2 tsk karrý Aðferð: Takið til þrjár skálar, hrærðu saman egg í einni, hveiti í annari og rasp, chilli-krydd, salt, pipar og steinselju í […]
Creamy coconut milk-braised chicken made entirely in one pan.
Skillet chicken thighs in sundried tomato parmesan cream sauce – Easy and flavorful, try this skillet chicken recipe asap! The delicious sauce drenching the chicken is made with fresh garlic,…
Þessi er í algjöru uppáhaldi, bragðlaukarnir fara bókstaflega á milljón þegar þú tekur fyrsta bitann og þú getur ekki hætt ;) Enda öll upphálds kryddin mín saman komin í þessum rétti. Og þar…
This easy recipe for Southern fried chicken is the only one you'll ever need. This is part of BA's Best, a collection of our essential recipes.
Gott, hollt, girnilegt og einfalt – er hægt að biðja um eitthvað meira?
Virkelig lækker kyllingefilet i fad med honning og dijonsennep, som både holder kyllingen saftig og giver en let sprød overflade samt en fantastisk smag.