Rjómakenndur hakk og pastaréttur með cheddarosti. Æðislega góður og bragðmikill pastaréttur, mæli einstaklega mikið með honum en allir stóðu afvelta upp frá borðinu. Frábær með hvítlauksbrauði!
Ég er með móral yfir því að hafa ekki náð að svara skilaboðum og kommentum síðustu daga. Það er búið að vera mikið að gera og ég er þess að auki búin að vera í saumaklúbbum síðustu tvö kvöld. Eins …
Ef mig langar í eitthvað virkilega djúsí og ljúffengt í matinn en samt sem áður bara svona "virkan-dag-mat" þá hendi ég annað slagið í þess...
Nú geta frostbitin hjörtu tekið gleði sína því þessi réttur er einn af þeim sem gerir allt betra. Hér erum við tala um flest það sem við elskum heitast; kjötbollur, piparosta, piparostasósu og allt hitt gúmmelaðið sem gerir lífið betra.
Einfaldur heimilismatur er stundum það besta sem maður leggur sér til munns - ég hef gerst sekur um að gera hvunndagsmat ekki nógu og hátt undir höfði. Í þessari færslu eru þrír réttir sem allir eiga það sameiginlegt að sameina blandað kjöthakk og hvítkál á mismunandi hátt. Þann fyrsta lærði ég að gera af föður mínum sem er mikill kjötbolluunnandi. Kálbúðingin sá ég fyrst í IKEA - og var hann fullkomlega óætur. Ég var viss um að hægt væri að gera hann betri og sá síðasti er í raun hápunktur sænskrar kjötbollueldamennsku - kálbögglar, sem eiga uppruna sinn í Tyrklandi. Það er nokkuð merkilegt hvernig sá réttur hafnaði í Svíþjóð - og ennþá er rökrætt um atburðarásina. Áhugaverðasta sagan er sú að Karl XII Svíakonungur, vonlaus stríðskóngur, var einu sinni sem oftar að berjast á framandi vígvöllum og tapaði bardaga árið 1709 á móti Rússum, við Poltova í Úkraníu. Hann þurfti að flýja ásamt mönnum sínum og endaði í Moldavíu undir verndarvæng Ottomanveldisins. Þar þurfti hann að bíða með her sinn í fimm ár (sem betur fer kannski því þá fór hann ekki í stríð á meðan). Meðan á dvölinni stóð bjó kóngurinn sænski í góðu yfirlæti og fékk að kynnast tyrkneskri matarmenningu. Kálbögglar eru sem sagt túlkun Svía á þekktum tyrkneskum rétti! Fyrsti rétturinn er einn af þeim sem faðir minn kenndi mér að útbúa og var reglulega á borðum á okkar heimili. Mér fannst hann eiginlega alltaf bestur daginn eftir þegar ég notað afgangana, niðurskornar kjötbollur, kartöflur og sinnep ofan á ristað brauð. Þegar ég var lítill var ég alltaf með Gunnars sinnep, en núorðið útbý ég gjarnan dijonaise til að setja ofan á brauðið! Kjöt og kál - þrjár afar heimilislegar uppskriftir; kjöt í káli, kálbúðingur og kálbögglar á sænska vísu! Kjöt í káli - einfalt og ljúffengt! 300 g lambahakk 300 g nautahakk 300 g svínahakk 1 tsk lyftiduft 75 g hveiti 1 egg 100-150 ml kalt vatn cheyanne pipar - á hnífsoddi salt og pipar Fullt af gulrótum, kartöflum og hvítkáli Kjötkraftur Fyrst er að undirbúa farsið. Það er auðvitað hægt að kaupa það út í búð - en ég kann betur við að vita hvað ég legg mér til munns. Blandið lamba-, nauta- og grísahakkinu saman í matvinnsluvél. Setjið svo saman við lyftiduftið, hveitið, eggið og kryddið. Setjið að lokum kalt vatn saman við þangað til að þið eruð kominn með meðfærilegt deig. Lovely. Svo er bara að hita nóg af vatn í stórum potti og leysa upp nokkra teninga af einhvers konar kjötkrafti (ég valdi kjúklingakraft). Flysjið gulræturnar og bætið út í létt-sjóðandi vatnið, svo kartöflunum og að lokum hvítkálið. Byrjið svo að móta kjötbollurnar (auðveldast með því að nota tvær matskeiðar) og láta þær svo út í sjóðandi vatnið. Látið bollurnar sjóða í 15-20 mínútur. Raðið öllum herlegheitunum á stóran disk. Sannkallað "One-pot wonder"! Eina sem þarf er bráðið smjör og þá er punkturinn kominn yfir i-ið! Sænskur kálbúðingur með smá útúrdúr! 400 g svínahakk 400 g nautahakk 200 g soðið blómkál (eða hrísgrjón) 3 egg 1 laukur 2 hvítlauksrif 2 msk smjör 3 msk soya sósa 150 ml kjötsoð 2 msk hlynsíróp salt og pipar Byrjið á því að skera laukinn og hvítlaukinn smátt og steikjið í smjöri þangað til laukurinn er mjúkur. Saltið og piprið. Setjið síðan kjöthakkið í skál og blandið lauknum vandlega saman við ásamt þremur eggjum, soyasósu, sírópi og kjötsoði. Næst hefði átt að blanda soðnum köldum hrísgrjónum saman við en ég átti afgangs blómkálsmús frá því kvöldinu áður og notaði hana. Blandið öllum hráefnum vandlega saman. Saltið og piprið eftir smekk. Skerið hvítkálið í strimla og steikið í klípu af smjöri þangað til það tekur lit. Þá er bara að réttinum saman. Takið eldfast mót og smyrjið með hvítlauksolíu. Setjið síðan helminginn af hvítkálinu í botninn og svo kjötfarsið ofan á. Setjið afganginn af hvítkálinu ofan á farsið. Bakið síðan í 180 gráðu heitum ofni í 45 mínútur. Berið fram með einfaldri brúnni sósu gerða úr kjötsoði, smjörbollu, rjómaskvettu, salti og pipar. Sænsk hefð kallar á títuberjasultu en rabbabarasulta er einnig ljúffeng með! Kálbögglar að hætti Karl XII 500 g lambahakk 500 g nautahakk börkur af heilli sítrónu 3 msk mynta 1 msk broddkúmen 1 msk kóríander 1/2 tsk kanill 1/4 tsk chiliduft 1 steiktur rauðlaukur 4 hvítlauksrif salt og pipar 500 ml nautasoð 1 hvítkálshöfuð Byrjið á því að skera laukinn og hvítlaukinn smátt og steikið hann í olíu þangað til að hann er mjúkur og glansandi. Setjið hakkið í skál og bætið lauknum saman við. Skolið sítrónu og raspið börkinn (bara gula hlutann - skiljið hvítabörkinn eftir þar sem hann er bitur og bragðvondur). Saxið síðan börkinn smátt og bætið við hakkið ásamt saxaðri myntu, broddkúmeni, kóríander, kanil og chili. Saltið og piprið og blandið vel saman. Sjóðið vatn í potti sem mun rúma kálhausinn. Reynið að skera stilkinn úr hvítkálinu og setjið svo hvítkálið í vatnið í um 5 mínútur. Þetta auðveldar manni að losa hvítkálsblöðin frá. Leggið hvítkálsblaðið á skurðarbretti og setjið rúma matskeið af hakki á blaðið og vefjið því svo upp þannig að það lokist alveg. Setjið í eldfast mót. Endurtakið. Hellið kjötsoði ofan á kálbögglana og bakið í 180 gráðu heitum ofni í 30 mínútur. Skreytið með smá myntu. Hellið soðinu af kálbögglunum og þykkið með smjörbollu. Smá rjómaskvetta. Smakkið til með salti og pipar. Það verður veisla í kvöld.
Vinsælasta nautahakksuppskriftin hér á Eldhússögum er nautahakksrúlla með brokkolí og osti. Það er skemmtileg útfærsla á nautahakki og tilbreyting frá hefðbundum nautahakksuppskriftum, en ekki síst…
Við höfum dvalið í New York nú um helgina. Við fengum ráðleggingar hjá vinum okkar, Tómasi og Önnu Margréti, sem dvöldu hérna í sumar á...
Síðastliðinn vetur lærði ég skothelda eldunaraðferð á nautalund og ég hef ekki eldað hana á annan hátt síðan. Ég get lofað að lundin verður fullkomin í hvert einasta sinn! Þar sem þetta er svo einf…
Síðastliðið sumar fór ég í fyrsta sinn í 17 sortir og smakkaði allskonar gúmmelaði bollakökur. Þar sem ég sat og naut hvers bita renndi ég augunum yfir afgreiðsluborðið og fannst hver kakan þar ann…
Þeir sem fylgja mér á snapchat og instagram hafa líklegast flestir tekið eftir því að við Emil erum hætt að …
Við höfum dvalið í New York nú um helgina. Við fengum ráðleggingar hjá vinum okkar, Tómasi og Önnu Margréti, sem dvöldu hérna í sumar ásamt yndislegu drengjunum þeirra - tvíburunum, Marínó og Sólvin. Þau voru í íbúðaskiptum og dvöldu í á aðra viku í Brooklyn, hverfi sem hefur tekið miklum breytingum síðastliðinn áratug eða svo. Við fundum ágætis hótel skammt frá Brooklyn brúnni - Aloft hótelið á Duffield götu. Þaðan höfum við kannað svæðið ýmist á fótgangandi eða hjólandi. Við fórum í afar skemmtilega hjólaferð um Brooklyn með Tony sem starfar hjá Brooklyn Bicycle Tours. Við fórum í ljómandi skemmtilega ferð með honum - The Brooklyn Pizza Sunset Tour þar sem við hjóluðum um allt hverfið - frá Williamsburg þvert og endilangt og svo suður til Brooklyn Heights. Við fengum að smakka flatbökur frá þremur stöðum - allt frábærar bökur. Mér fannst sú síðasta best - en hún var fyrst steikt og svo eldbökuð - pizza fritta. Svo höfum við gengið borgina þvera og endilanga - í dag fengum við svo bókstaflega veður af veðrinu á Íslandi. Flugið okkar til Íslands var afbókað og nær ómögulegt að fá upplýsingar um hvernig heim átti að komast. Eftir um tuttugu símtöl til Icelandair - og tveggja klukkustunda bið bauðst okkur að komast til Íslands með því að fara í gegnum Minneapolis - sem þýðir ferðalag upp á fimmtán klukkustundir. Ég náði að skipta vakt en konan mín missir af tækifæri til að halda fyrirlestur sem skipulagður var við heimkomu. Þó að ég skilji vel að ófyrirsjáanlegar aðstæður sköpuðust með þessu óveðri þykir mér furðulegt að ekki megi setja farþega í betra sæti til að flýta fyrir heimkomu. Við þessar aðstæður segir maður bara að sem betur fer er samkeppni um flugfarþega á Íslandi. Við náðum líka að redda pössun fyrir börnin okkar. Sem betur fer eigum við gott fólk á Íslandi, ömmu Lilju og afa Ingvar og svo bróður minn - sem sjá um grísina. Við hlökkum til að komast heim! Lambakjötbollur stroganoff með tagliatelle og ristuðum valhnetum Ég fékk hugmyndina að þessum rétti af myndbandi sem ég fann á netinu. Ég breytti uppskriftinni auðvitað aðeins til að laga hana að "séríslenskum aðstæðum" Hráefnalisti Fyrir fjóra til sex 500 g lambahakk 500 g nautahakk 2 skalottulaukar 100 g heimagerður raspur (ég átti brauð frá Brauð og Co - ekki leiðinlegt það) 2 egg 4 msk heimagerð hvítlauksolía 1 msk hökkuð steinselja 1 msk timjan salt og pipar 250 g sveppir 1 msk djion sinnep 2 msk smjör 1/2 hvítvínsglas 250 ml kjötsoð ein dós af sýrðum rjóma 4 greinar af timjan salt og pipar handfylli valhnetur 100 g af tagliatelle á mann Byrjið á að blanda kjötbollurnar - setjið allt hráefnið í skál; hakkið, eggin, raspinn, hvítlauksolíuna, fersku kryddjurtirnar, salt og pipar og hnoðið vandlega saman. Klípið svo rúmlega matskeið af blöndunni og mótið í fallegar kjötbollur - að stærð við golfbolta. Bræðið smjör á góðri pönnu. Ég elska að nota járnpönnur við svona eldamennsku - eitthvað í mér segir mér að kjötið brúnist betur á svona pönnum en öðrum pönnum. Þegar búið er að brúna bollurnar að utan setjið þið þær svo í eldfast mót og bakið í 180 gráðu heitum ofni í kortér. Sneiðið sveppina í sneiðar. Bræðið meira smjör í pönnu og karmelliserið svo sveppina að utan þangað til að þeir eru fallega brúnir. Það er um að gera að fá börnin ykkar til að hjálpa til á þessu stigi málsins. Maturinn verður bara betri þegar svona krútt hjálpa til við matargerðina. Þið getið dáðst að þeim - og notið rauðvínsdreitils á meðan. Ekki gleyma því að salta og pipra. Þegar sveppirnir eru brúnaðir - setjið þið sinnepið saman við og blandið vandlega saman. Ilmurinn í eldhúsinu mun verða dásamlegur. Bætið svo hálfu hvítvínsglasi á pönnuna og sjóðið áfengið vel niður. Bætið næst við kjötsoði og sjóðið niður um helming. Snarið svo einni dós af sýrðum rjóma á pönnuna og blandið vel saman. Næst ferskt timjan - það má auðvitað setja það fyrr á pönnuna. Bætið svo kjötbollunum saman við sósuna. Sjóðið tagliatelle í söltu vatni þangað til að það er "al dente" - sem þýðir að það er aðeins undir tönn þegar bitið er í það. Ristið handfylli af valhnetum í þurri pönnu. Með matnum nutum við þessa rauðvíns; Marques de Casa Concha Cabernet Sauvignion frá því 2015. Þetta er vín frá Chile sem ég hef drukkið nokkrum sinnum áður - og er gjarn á að taka með mér þegar ég fer í gegnum tollinn á Keflavíkurflugvelli. Þessi sopi er munnfyllur - fallega dumbrautt í glasi - með þéttu ávaxtabragði - sólber og kirsuber, kryddað og jarðkennt með ljúfu eftirbragði. Þetta var einstaklega velheppnaður réttur. Lambahakk er ótrúlega ljúffengt! Verði ykkur að góðu!
Eftir bolludag og sprengidag í beinu framhaldi mætti kannski ætla að enginn hefði áhuga á bollum í neinu formi á næstunni en ég þori nánast að fullyrða að þessar kjötbollur fá ykkur til að skipta u…
Í gær var ég með hægeldað lambalæri í sunnudagsmatinn. Það var dásamlega meyrt og gott, hreinlega bráðnaði í munni! Að auki var fyrirhöfnin næstum engin. Ég setti lærið ásamt kartöflum og grænmeti …
Í gærkvöldi bauð mamma okkur í lambalæri sem hún bar fram með kartöflugratíni og salati. Í eftirrétt hafði hún bakað danska eplaköku sem var, að sjálfsögðu, borin fram með rjóma (því mamma elskar r…
Dröfn Vilhjálmsdóttir geislafræðingur, bókasafnfræðingur og matarbloggari á eldhussogur.com deildi í morgun girnilegri uppskrift af Hakkhleif með með beikoni, döðlum og fetaosti. Fullkomin vetraruppskrift. Ég tala nú ekki um með rauðvínsglasi, góðu salati og ljúfum félagskap.
Hér er uppskrift að frábærum hversdagsmat sem ætti að falla í kramið hjá öllum aldurshópum. Þetta er eitthvað sem vert er að gera aftur og aftur. Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur uppskrift að kartöflugratíni með nautahakki. Það sem þarf 500 g nautahakk 1 msk smjör 1 laukur …
Það er ekki seinna vænna en að setja inn uppskrift af jólamatnum! Stórfjölskyldan mín eyðir alltaf aðfangadagskvöldinu saman. Eftir að við fluttum til Íslands fyrir fjórum árum tók ég við aðfangada…
Ég hef undanfarna daga verið löt í eldhúsinu. Hef lítið nennt að hafa fyrir kvöldmatnum og viljað hafa hann eins einfaldan og hægt er. Það geta komið svona dagar, en núna finn ég hins vegar að þett…
Eins og hjá flestum barnafjölskyldum er taco afar vinsæll matur á okkar heimili. Hins vegar er alltaf dálítið vesen að borða tacoskeljar! Ég geri stundum því stundum vinsælan tacorétt í staðinn sem…
Einn uppáhaldshversdagsrétturinn heima hjá Svövu Gunnarsdóttur sem er með matarbloggið ljufmeti.com eru þessar ofnbökuðu kjötbollur.
Í dag hófst skólinn hjá krökkunum á ný og við erum að springa úr spennu og gleði yfir því. Stundaskráin er komin í hús og skólatöskurnar bíða tilbúnar í forstofunni. Mér þykir þessi árstími alltaf …
Þar sem að einn af fjölskyldumeðlimunum hallast að lágkolvetna lífsstílnum (LKL) hef ég reynt að elda mat sem hentar slíkum lífsstíl undanfarið. Þegar ég var að skoða uppskriftir á netinu rakst ég …
Það er mikilvægt að hafa góða sósu með nautalundinni á borð við þessa kröftugu púrtvinssósu. Fleiri góðar sósur með kjöti má svo finna hér. 2 skalottulaukar, fínsaxaðir 3 dl púrtvín 1 dl balsamikedik 1 dl nautakraftur 2 msk tómatakraftur 1-2 timjanstönglar smjör salt og pipar Hitið smjör í potti og mýkið saxaða skalottulaukinn á miðlungshita.Lesa nánar
Þessi réttur er ákaflega einfaldur en þess eðlis að allir í fjölskyldunni ættu að kolfalla fyrir honum. Það er að minnsta kosti það sem Svava Gunnars á Ljúfmeti og lekkerheit segir og sjaldan segir sá snillingur ósatt.
Um daginn gerði ég þessa nautahakksrúllu sem sló í gegn hér heima og ég sé að þetta er vinsæl uppskrift hér á blogginu. Ég er búin að horfa á nýjan ost frá Philadelphia úti í búð í nokkurn tíma. Þe…
Ég er búin að vera með pannerað hakkabuff á heilanum síðan ég las komment hér á síðunni frá Halldóri Tjörva. Til að fá hugarró kom ég við í búð á leiðinni heim í gær og keypti nautahakk. Þegar heim…
Um daginn gerði ég þessa nautahakksrúllu sem sló í gegn hér heima og ég sé að þetta er vinsæl uppskrift hér á blogginu. Ég er búin að horfa á nýjan ost frá Philadelphia úti í búð í nokkurn tíma. Þe…
Ég gerði enn eina útfærsluna af nautahakksrúllunni vinsælu en þetta kunn vera fjórða útgáfan sem ég set hingað á síðuna. Þetta byrjaði allt með nautahakksrúllunni með brokkolí og osti.Ég færði mig …