Úr aðfangabók: Skúfhólkur úr silfri, l. 4, þverm. 1,3: snúrur um enda. Allur útgrafinn með hálfhringum og ganga jafnan 2 inn í hvern miðjan, svo að hann skiptist í þrent: en miðflöturinn sljettur, en hinir notaðir (flannaðir). Gamall að sjá,. sennilega ekki yngri en frá 1850. Úr Gersemar og þarfaþing: (Texti eftir Þór Magnússon) „Skúfhólkar eru eitt af sérkennum gamla, íslenzka þjóðbúningsins, upphlutsins og peysufatanna, og hefur mörgum erlendum ferðamanninum á 19. öld orðið starsýnt á þetta einkennilega kvenskart og getur þess í ferðabókum. Skúfhólkarnir eru enda margs konar, allt frá einföldum látúnshólkum og til vönduðustu víravirkishólka úr silfri eða jafnvel gullhólka. Skúfhólkurinn virðist gerður til að hylja samskeyti skotts og skúfs, þar sem þau eru saumuð saman. Alkunna er hvernig kvenhúfan breyttist frá því að vera djúp og sitja föst á höfðinu með litlum skúfi og örlitlum hólki, svo sem sjá má á ljósmyndum frá 19. öld, og til þess að vera smábleðill efst á kollinum, sem næla varð með títuprjónum, eins og þekktast er nú í seinni tíð. Skúfurinn stækkaði þá og skúfhólkurinn jafnframt og urðu hólkarnir þá vandaðri og veglegri. Yfirleitt eru skúfhólkar 4,5 - 5 cm langir, gátu stundum orðið allt að 6 cm. Flestir eru þeir 1,5 - 2 cm í þvermál við brún, flá þar oft út eða eru með stétt (stéttarhólkar). Hólkarnir eru kveiktir saman úr þunnri plötu, oft eru þeir síðan valsaðir og ganga dældir umhverfis eða þá með útrennslum. Oft eru hólkarnir einnig grafnir á milli útrennslanna, með blómum eða jurtum, eða þá að einungis er grafið í sléttan hólkinn. Sérkennilegir eru skúfhólkar með myndum, gerðir eftir konungskomuna 1874. Stundum eru upphleyptar bólur stappaðar í fletina en eins eru hólkarnir oft sléttir, tíðast þá áttstrendir og fletirnir þá oft grafnir, allir eða annar hvor. Oft eru hólkarnir gylltir, einkum var svo um látúnshólka, og silfurhólkar gylltir oft að hluta til eða jafnvel algylltir. Flestir voru hólkarnir úr silfri og eftir að nýsilfur kom til sögu þótti það hentugt efni til ódýrari smíða. Hinir vandaðri voru með víravirki og einkum hafa tvöfaldir hólkar þótt vandaðir. Var þá innri hólkurinn, fóðringin, úr þunnri silfurplötu en víravirki á ytra borði. Fóðringin var oft gyllt og glóði gegnum víravirkið. Sumir hólkar eru með skrautbekkjum kveiktum á, ferstrendum kanti eða kanti úr snúnum silfurvír. Sjaldan voru skúfhólkar úr gulli en hafa þá þótt kjörgripir. Stundum sjást nöfn eða fangamörk kvenna grafin á skúfhólka, einkum síðla á 19. og 20. öld. Skúfhólkar hafa verið með algengustut smíðum gull - og silfursmiða og eru þó ekki allir hólkar íslenzkir, því að eitthvað var flutt inn af þeim t.d. um síðustu aldamót. Skúfhólkar voru meðal þess kvensilfurs sem silfursalar á 19.öld fóru með um sveitir. Þjóðminjasafnið á mikið safn skúfhólka frá ýmsum tímum, og af mismunandi gerðum, en flestir eru þeir þó hinir algengustu 19. aldar hólkar, margir hverjir listasmíð. Matthías Þórðarson hefur safnað þeim markvisst til safnsins og oft fært marga þeirra inn í einu, ef þeir komu úr sama landhluta. Hefur hann þannig safnað 64 hólkum árið 1920. Er þeim öllum skilmerkilega lýst í skrám safnsins en ekki segir þar nánar um uppruna þeirra, smiði né eigendur. Allir munu þeir þó fengnir í Reykjavík og næsta nágrenni.“ (Sett inn af Sigrúnu Blöndal, 26.8.2010)
Havsgudinnan Ran och hennes maka hade nya döttrar, ursprungligen var alla uppkallade efter vågor. Deras isländska namn är: 1 Himmingläva – den himmelsklara 2 Duva – den duvande (den böljande) 3 Blodughadda – med blodigt hår, dvs som havet efter ett sjöslag 4 Hevring – den som häver sig 5 Unn – våg 6 Hrönn…