2020 — NIINA KRATZ
To all those DIY Brides: We did our own project this past month. We were looking for a Cake stand with crystals and was surfing the internet...
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins. Veggfóðursmynstrið Bird var upphaflega hannað fyrir textíl og sýnir kyrrláta stemningu af fuglapörum sem ýmist sitja á grein eða hefja sig til flugs. Mynstrið er innblásið af veggteppi sem William Morris gerði árið 1878 og prýddi teiknistofu hans í Kelmscott House. Bird fæst í fjórum sterkum litasamsetningum sem gefa öllum rýmum mikinn karakter. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Leiðbeiningar fyrir veggfóður með pappírsbaki
Citadel 1980s preslotta Warhammer Fantasy C17 "Skeletons - Finrum - Liche"