„Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá öllum í fjölskyldunni. Hann er einfaldur og tekur ekki mikinn tíma að gera. Gott er að nota afganga í salat daginn eftir ef einhverjir verða. Stjarnan í þessari uppskrift er bbq-tómatsósa sem við erum að smyrja á allt hér á mínu heimili,“ segir Linda Björk Ingimarsdóttir, matgæðingur Matarvefjarins.