1. Byrjað var á að smíða timburramma með vatnsheldum botni. 2. Í hann var sett mold, blönduð vikri. 3. Plöntunum var komið fyrir í rammanum. Þetta voru berghnoðra, helluhnoðra, bergflétta, rottueyra, ljónslappi og jarðarberjaplöntur. 4. Vírnet var sett yfir rammann til að styðja við plönturnar. 5. Veggurinn var hafður láréttur í fjórar vikur á meðan plönturnar jöfnuðu sig vel. 6. Veggurinn gaf af sér góða uppskeru, bæði kryddjurtir og jarðarber.